Opnunartímar
Upplýsingamiðstöð Árborgar
Austurvegi 2, 800 Selfoss
15. maí - 31. ágúst
Mánud. til föstud.: 10:00 - 18:00
Laugardaga: 11:00 - 14:00
Sími: (+354) 480 1990
Tölvupóstur: tourinfo@arborg.is
Eyrarbakki
Eyrarbakki
Eyrarbakki er vinalegt þorp sem áður var helsti verslunarstaður á Suðurlandi. Fjöldi húsa er frá því um aldamótin 1900. Gaman er að ganga um götur á Eyrarbakka því sögulegur andi svífur yfir bænum á meðan brimið ber ströndina sem er einstaklega stórbrotin. Húsið á Eyrarbakka er eitt elsta hús landsins, þar er nú Byggðasafn Árnesinga. Í Sjóminjasafninu er teinæringurinn Farsæll merkastur gripa. Möguleiki er á gistingu í þorpinu eða á tjaldstæði og veitingahús og verslun er fyrir þá sem vilja. Fuglafriðlandið við Eyrarbakka er tilvalið til fuglaskoðunar, er varpstaður votlendisfugla og er á alþjóðlegum lista yfir mikilvæg votlendissvæði.
Meiri upplýsingar um Eyrarbakka er hægt að finna á vefsíðunni www.eyrarbakki.is