Eyrarbakki


Eyrarbakki

Eyrarbakkier vinalegt þorp sem áður var helsti verslunarstaður á Suðurlandi. Fjöldi húsa er frá því um aldamótin 1900. Gaman er að ganga um götur á Eyrarbakka því sögulegur andi svífur yfir bænum á meðan brimið ber ströndina sem er einstaklega stórbrotin.  Húsið á Eyrarbakka er eitt elsta hús landsins, þar er nú Byggðasafn Árnesinga. Í Sjóminjasafninu er teinæringurinn Farsæll merkastur gripa. Möguleiki er á gistingu í þorpinu eða á tjaldstæði og veitingahús og verslun er fyrir þá sem vilja. Fuglafriðlandið við Eyrarbakka er tilvalið til fuglaskoðunar, er varpstaður votlendisfugla og er á alþjóðlegum lista yfir mikilvæg votlendissvæði. 

Meiri upplýsingar um Eyrarbakka er hægt að finna á vefsíðunni www.eyrarbakki.is