Opnunartímar


Upplýsingamiðstöð Árborgar
Austurvegi 2, 800 Selfoss
15. maí - 31. ágúst
Mánud. til föstud.: 10:00 - 18:00
Laugardaga: 11:00 - 14:00
Sími: (+354) 480 1990
Tölvupóstur: tourinfo@arborg.is

Stokkseyri


Stokkseyri
  Stokkseyri er notalegt þorp sem er þekkt fyrir fuglalíf og stórbrotna og fagra fjöru við enda Þjórsárhrauns þar sem skiptast á sker, flúðir, lón og rásir. Öflugt lista- og menningarlíf er á Stokkseyri, vinnustofur, gallerý og söfn. Þar er að finna drauga, álfa og norðurljós, uppstoppuð dýr og skemmtigarð fyrir fjölskylduna, sem og kajakaferðir á dælum eða sjó. Verslun, veitingahús og gisting í boði. Þuríðarbúð er endurgerð sjóbúð sem lýsir vel aðbúnaði verbúðafólks á árum áður. Austan við Stokkseyri er Knarrarósviti en stíll vitans er athygliverð blanda af fúnkis og art nouveau stefnum í arkitektúr.

Meiri upplýsingar um Stokkseyri er hægt að finna á vefsíðunni www.stokkseyri.is


Prenta þessa síðu





Upplýsingamiðstöð Árborgar - Austurvegi 2, 800 Selfoss - 480-1990 - tourinfo@arborg.is